Hættir flutningum til og frá Persaflóa

Kínverski skipaflutningarisinn Cosco, sem rekur einn stærsta olíuflutningaskipaflota heims, tilkynnti að frá og með deginum í dag yrðu siglingar til og frá Persaflóaríkjum stöðvaðar, þar á meðal til Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Barein, Sádi-Arabíu, Íraks og Kúveit.