Þrítug kona lést úr blóðeitrun á sjúkrahúsi í Pszczyna, í suðurhluta Póllands þegar hún var á tuttugustu og annarri viku árið 2021. Fullt nafn konunnar hefur ekki verið gefið upp en vísað er til hennar í málsskjölum sem Izabelu. Hún hafði misst vatnið og þungunarrofi var frestað þótt vitað væri um fósturgalla. Izabela var látin innan við sólarhring síðar. Fjölskylda hennar segir að læknarnir hafi beðið með að meðhöndla hana þar til fóstrið væri dáið, af ótta við ákæru. Auknar kröfur fyrir þungunarrofi Árið áður höfðu skilyrði í Póllandi fyrir þungunarrofi verið hert. Þungunarrof er eingöngu heimilt í Póllandi undir tveimur kringumstæðum. Annars vegar ef kona verður þunguð eftir nauðgun eða sifjaspell og hins vegar ef þungunin ógnar lífi eða heilsu konunnar. Breytingunum var mótmælt í fjölmennum mótmælum víðsvegar um Pólland. Sjúkrahúsið segir ákvarðanir heilbrigðisstarfsmanna hafa verið byggðar á hagsmunum bæði móður og fósturs. Þetta mál er það fyrsta sem kemur fyrir dómstóla eftir að stjórnarskrárdómstóll Póllands úrskurðaði að ekki væru lagaleg skilyrði fyrir því að heimila þungunarrof eftir að alvarlegir fósturgallar greinast. Fyrir úrskurðinn voru 98 prósent löglegra þungunarrofa í Póllandi framkvæmd vegna fósturgalla. AFP greinir frá því að nokkrar barnshafandi konur hafi dáið á pólskum sjúkrahúsum undanfarin ár, flestar vegna þess að læknar neituðu að binda enda á þungun þeirra. Þrír læknar sviptir læknaleyfi í nokkur ár Þrír læknar meðhöndluðu Izabelu og voru ákærðir fyrir að stefna lífi hennar í hættu með beinum hætti. Dómar þeirra voru misþungir. Einn var dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi og sviptur læknaleyfi í sex ár. Annar fékk eins árs skilorðsbundinn dóm og var sviptur læknaleyfi í fjögur ár. Þriðji læknirinn var einnig ákærður fyrir manndráp af gáleysi og dæmdur í átján mánaða fangelsi og sviptur læknaleyfi í sex ár. Bæði verjendur læknanna og ákæruvaldið áfrýjuðu dóminum til hærra dómstigs, sem í gær komst að þeirri niðurstöðu að allir læknarnir ættu að sitja inni fyrir brot sín. Sá sem hafði fengið skilorðsbundinn dóm var því dæmdur í fangelsi eins og hinir. Sá læknir var í afleysingum sem yfirlæknir á deildinni þegar Izabela lést. Dómstóllinn sagði að hann hefði átt að bera ábyrgð ekki aðeins á læknismeðferð Izabelu heldur einnig á skipulagi deildarinnar og því bæri að þyngja refsingu hans. Lögmaður fjölskyldu Izabelu segir niðurstöðuna til vitnis um að réttlætinu hafi verið fullnægt.