Markaðsgengi Skel er um þrjátíu prósent lægra en jafngildir innra virði þess, sem má meðal annars rekja til óvissu um virði óskráðra eigna, en í nýrri greiningu er fjárfestingafélagið sagt verulega vanmetið á markaði. Þar er þeirri spurningu velt upp hvort munurinn í verðlagningu á Skel borið saman við önnur skráð félög sem starfa í smásölu og þjónustu „eigi að vera svona gríðarlega mikill“ en fjárfestingafélagið er í þeim samanburði á tæplega „hálfvirði“ miðað við það sem reksturinn skilar hluthöfum í hagnað.