Á sama tíma og ríki Evrópusambandsins létta regluverk á sviði orku- og umhverfismála innleiða íslensk stjórnvöld eldri og í raun úreltar reglugerðir í EES-samninginn sem ganga í öfuga átt. Aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar segir þetta koma niður á samkeppnishæfni Íslands. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, fór yfir þróun regluverks Evrópusambandsins í umhverfis- og orkumálum á ársfundi fyrirtækisins í gær. Sagði hún að eftir innrásina í Úkraínu hafi Evrópa staðið frammi fyrir mikilli hækkun orkuverðs. Evrópa þurfti nýja orku á markað og það hratt. Það sem stóð ríkjum ESB fyrir þrifum, eins og Íslandi raunar, var þungt regluverk, eins og dregið var fram í skýrslu Marios Draghis, fyrrverandi bankastjóra evrópska seðlabankans. „Þess vegna er Evrópa búin að vera að horfa svolítið mikið inn á við og segja, hvernig getum við lagfært okkar regluverk til að tryggja að fyrirtækin okkar vaxi og blómstri í erlendri samkeppni. Íbúar heimsins vilja auðvitað flytja til Evrópu því þar er gott að búa. Þar er öryggi og þetta er samfélag sem þú vilt búa í en þú getur ekki haldið uppi þessu samfélagi ef þú getur ekki haldið uppi samkeppnishæfni álfunnar.” Undanfarið hefur sambandið því létt á regluverki og einfaldað ferla. Á endanum verða þessar breytingar innleiddar í íslensk lög í gegnum EES-samninginn en Ísland hefur um árabil dregið að innleiða EES-gerðir og glímir við innleiðingarhalla. Þær reglugerðir sem Ísland hefur verið að innleiða upp á síðkastið eru í raun úreltar og ef Ísland bíður í mörg ár með að innleiða lög og reglugerðir sem nú er verið að setja munu Íslendingar dragast aftur úr. „Það var auðvitað bara samið í allt annarri heimsmynd en við erum að takast á við í dag. Síðan þá hefur Evrópa stigið mjög markviss skref til þess að auka hraðann, eins og með orkuskiptunum, minnka skrifræði og bara almennt horfa á alla sína reglugerðarumgjörð. Jú, við þurfum að takast á við þennan innleiðingarhalla en förum líka í þessar reglur sem búið er að samþykkja núna og er nýverið búið að samþykkja og setjum þá inn í pakkann.”