Ríkarður Ríkarðsson hefur verið ráðinn aðstoðarforstjóri Landsnets og mun hefja störf um miðjan apríl næstkomandi. Hann verður staðgengill forstjóra og situr í framkvæmdastjórn fyrirtækisins, mun stýra sameiginlegum málefnum í umboði forstjóra og verður stjórn og forstjóra til ráðgjafar í stefnumótun, innleiðingu stefnu og ákvörðunartöku.