Gagnrýnir RIFF: „Mér ofbýður þessi misnotkun á öllum þessum styrkjum“

„Mér ofbýður þessi misnotkun á öllum þessum styrkjum. Því að þetta gekk bara út á það að sníkja, fá allt frítt, redda öllu fríu,“ segir Þorbjargar Jóhannsdóttir sem var starfsmannastjóri og framleiðandi á kvikmyndahátíðinni RIFF í fyrra. Þorbjörg lýsir upplifun sinni af því að vinna á RIFF í fimm mánuði sem „skelfilegri“. RIFF er að stóru leyti fjármögnuð með styrkjum frá opinberum aðilum eins og íslenska ríkinu og Reykjavíkurborg. Þorbjörg hefur fundað með Vinnumálstofnun vegna gagnrýni sinnar á notkun RIFF á starfsfólki sem er ráðið í gegnum þessa ríkisstofnun með kostnaðarþátttöku hennar. Hún segir að sumt starfsfólk sem ráðið er til RIFF sé ráðið á kjörum sem eru undir lágmarkslaunum. „Ég ásamt tveimur öðrum starfsmönnum fengum fund hjá Vinnumálastofnun og ræddum þar við tvær góðar konur og bara sögðum frá öllu,“ segir hún. Þorbjörg segir að ráðningarstyrkir frá Vinnumálastofnun séu meðal annars misnotaðir á RIFF. Fjallað er um kvikmyndahátíðina RIFF og í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Óskað var eftir viðtali við eiganda og framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttur, en hún varð ekki við þeirri beiðni. Þáttinn má hlusta á hér: Starfsmenn kvikmyndahátíðarinnar RIFF hafa leitað til Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar og gagnrýnt hátíðina. Gagnrýnin beinist fyrst og fremst að eigandanum Hrönn Marinósdóttur. Opinberir aðilar styrkja RIFF um tugi milljóna. Vill óháða úttekt á RIFF Gagnrýni Þorbjargar er hluti af umræðu sem hefur verið um stjórnunarhætti og fjármál RIFF síðustu ár. Hátíðin er að stóru leyti fjármögnuð með almannafé í gegnum íslenska ríkið og Reykjavíkuborg. Árið 2024 var RIFF með tekjur upp á 115 milljónir króna. Þar af voru 90 milljónir styrkir og framlög frá meðal annars opinberum aðilum. Í fyrra var birt skýrslu frá endurskoðendafyrirtækinu KPMG um starfsemi RIFF þar sem bent var á fjölmörg gagnrýniverð atriði í rekstrinum. Skýrslan var gerð að beiðni ráðuneytis menningarmála og leiddi hún til þess að verklag við greiðslu styrkja frá ríkinu var endurskoðað. Annar starfsmaður á RIFF í fyrra, Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld, hefur sent bréf með gagnrýni á hátíðina til Reykjavíkuborgar, ráðuneytisins og Kvikmyndamiðstöðvar Íslands. Í bréfinu segir Guðmundur meðal annars: „Ég tel nauðsynlegt að hefja óháða úttekt á starfsháttum og rekstri RIFF og stjórnunarháttum framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrannar Marinósdóttur. Miðað við mína reynslu tel ég óeðlilegt að opinberir styrkir renni til verkefnis sem er haldið með þessum hætti.“ Guðmundur hefur einnig leitað til Vinnumálastofnunar líkt og Þorbjörg. Guðmundur Steinn segir um gagnrýni sína á stjórnarhætti á RIFF. „Megingagnrýni mín er að þetta er ekkert eðlilega illa rekið batterí. [...] Það eru fengnir inn einhverjir tugir milljóna í styrki og hátíðin er svo rekin þannig að það er verið að betla alls staðar. [...] Það er rétt litla fingur og það er verið að reyna að taka hendina alltaf. Það er verið að reyna að kúga alla til að gera allt. Það er engin yfirvinna borguð og hún borgar nánast engin laun sjálf, þetta er allt fólk sem er fengið inn á styrk frá Vinnumálastofnun. Ég fór á fund á Vinnumálastofnun af því þetta er í raun og veru alveg fáránlegt.“