Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur krafið heilbrigðisráðherra svara um hve lengi ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda eigi að bíða eftir úrræðum við hæfi. Þá vill hún svör við því hvort meðferð erlendis verið niðurgreidd á meðan beðið er eftir heildstæðum lausnum hér á landi.