Staða einhverfra hefur aldrei verið jafn slæm, að mati formanns Einhverfusamtakanna sem segir ungt einhverft fólk í reiðileysi. Það komi alls staðar að lokuðum dyrum. „Þetta er bara skelfing og þjónustuleysið er algert.“ Svona lýsir Stefanía Hulda Marteinsdóttir formaður Einhverfusamtakanna aðgengi einhverfra að aðstoð og heilbrigðisþjónustu. Er staðan verri en áður? „Já, hún er mjög slæm. Þeim er synjað alls staðar þar sem þau koma.“ Í Kveik í gær kom fram að einhverfum væri gjarnan synjað um heilbrigðisþjónustu, meðal annars hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Stefanía segir engar tölur til um hversu mörgum hefur verið neitað um þjónustu þar, en samtökin viti um mörg tilvik. „Þau nota hins vegar orðavalið frábending. Að einhverfa sé frábending í teymi.“ Hvað er frábending? „Fínt orð til að segja; þú átt ekki heima hér, farðu eitthvert annað.“ Fá enga þjónustu neins staðar Stefanía segir að sprenging hafi orðið í fjölda foreldra ungmenna og ungra fullorðinna sem leita til samtakanna, sá hópur telji nú að minnsta kosti 200. „Þau fá enga þjónustu neins staðar. Það veit enginn hvar þessir einstaklingar eru, þessir foreldrar hafa samband við Einhverfusamtökin og leita að úrræðum fyrir þessa einstaklinga.“ Hvaða úrræði eru til? „Það eru engin úrræði, það eru geðheilsuteymin en þau vilja ekki taka við einhverfum.“ Rekin úr einum af fáum úrræðum Eitt fárra úrræða sem einhverfum ungmennum býðst er Víðsjá, sem er ætlað ungmennum sem hafa verið óvirk í sex mánuði eða meira. „Þetta átti að vera úrræði sem mætir þörfum einhverfra. En því miður er þeim ekki að takast að mæta þörfum þessa hóps og það er strax búið að vera að vísa einhverfum úr úrræðinu af því Víðsjá telur sér ekki fært að mæta þörfum þeirra.“ Hversu mörgum hefur verið vísað frá? „Við erum ekki með staðfestar tölur en við fengum upplýsingar í gær um að 3-5 hefði verið vísað frá afþví að þarfir þeirra væru of þungar.“ Skelfilegar birtingarmyndir Stefanía segir birtingarmyndir þessa úrræðaleysis geti verið skelfilegar. „Því miður erum við að sjá stóraukningu. í sjálfsvígum og tilraunum til sjálfsvíga, sjálfsskaða.“ Er þessi aukning nýtilkomin? „Já, það sem er að berast til okkar, því miður. Fólk er mikið að hafa samband og segja sína sögu, af sínum ungmennum. Ættingjum, aðstandendum, vinum. Staðan er skelfileg.“