Grétar Mar Jónsson, varaþingmaður Flokks fólksins, fékk orðið við upphaf þingfundar dagsins áður en gengið var til dagskrár. Það nýtti hann til að biðjast afsökunar á orðum sem hann lét falla í þinginu í gær. „Ég vil minna á að þetta eru sérhagsmunaöfl sem stjórnarandstaðan er að verja. Þeir eru að verja ríka fólkið, kvótakóngana, sægreifana og fórna sér fyrir þá,“ sagði hann meðal annnars.