„Hver eru skilaboðin? Þau eru: Skammist ykkar! Skammist þið ykkar fyrir samkynhneigð ykkar!“

Þingmaður Samfylkingarinnar segir ummæli forsvarsmanns kaþólsku kirkjunnar um samkynhneigða og bælingarmeðferðir það argasta afturhald sem heyrst hafi á þessu ári. Kaþólska kirkjan sé að semja sig úr lögum við Ísland með „þessum ömurlegum ummælum.“ Kaþólska kirkjan bjóði að „deyfa kynhneigð Íslendinga“ „Kaþólska kirkjan býðst nú til að deyfa kynhneigð Íslendinga, af því þeir skulu skammast sín fyrir hana,“ sagði Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í ræðustól á þingi í dag undir dagskráliðnum Störf þingsins. Þessi ummæli Sigmundar Ernis eru tilkomin vegna ummæla kanslara kaþólsku kirkjunnar, Jakobs Rolland. Í útvarpsviðtali fyrr í vikunni sagði hann að kirkjan aðstoðaði fólk við að bæla niður samkynhneigð. Ummælin hafa vakið mikla athygli og nokkra úlfúð víða í samfélaginu. Tjáningar og trúfrelsi í landinu - en líka landslög Sigmundur Ernir sagðist ekki ætla að gerast svo bíræfinn að biðja kaþólsku kirkjuna um að deyfa trúhneigð sína. Tjáningarfrelsi sé í landinu sem og trúfrelsi. „En það eru líka lög í landinu,“ bætti hann við og vitnaði í almenn hegningalög. „Það argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári“ Sigmundur Rúnar segir kaþólsku kirkjuna á Íslandi semja sig úr lögum við Ísland með „þessum ömurlegum ummælum.“ „Sem er það argasta afturhald sem við höfum heyrt á þessu ári,“ segir hann, og heldur áfram. „Hver eru skilaboðin til allra bandamanna þeirra? Hver eru skilaboðin til allra Íslendinga sem vilja búa í frjálslyndu, lýðræðislegu samfélagi sem trúir á mannréttindi og setur lög til að tryggja mannréttindi? Hver eru skilaboðin?“ spyr Sigmundur Ernir. „Þau eru: Skammist ykkar! Skammist þið ykkar fyrir kynhneigð ykkar! Ætlum við að líða þetta? Ætlum við að segja sem svo, þetta er bara kaþólska kirkjan. Hún hlýtur að mega segja hvað sem er í nafni trúfrelsis, í nafni tjáningarfrelsis. Nei, við ætlum ekki að líða þetta! Við erum önnur þjóð en það sem kaþólska kirkjan er að segja hér á Íslandi.“