Innviðaráðuneytið hefur framlengt samkomulag um ríkisstyrkt áætlunarflug til Vestmannaeyja fram í miðjan mars. Þetta kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu vegna stöðvunar á dýpkunarframkvæmdum í Landeyjahöfn. Stöðva þurfti dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn í upphafi vikunnar vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi. Í tilkynningu Vegagerðarinnar á mánudag sagði að unnið væri að því að fá varahluti erlendis frá og að viðgerð tæki 10 til 20 daga. Þangað til myndi Herjólfur sigla milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar hélt aukafund um dýpkunarmál í gær og fékk þær upplýsingar að lokið yrði við viðgerð í lok næstu viku. „Innviðaráðuneytið fylgist náið með stöðu mála vegna bilunar í dýpkunarskipinu Álfsnesi í Landeyjahöfn,“ segir í svari ráðuneytisins. „Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er sú leið talin fýsilegust og fljótvirkust að hraða heimsendingu á varahlutum fyrir dýpkunarskipið. Gert er ráð fyrir að sú sending verði komin til landsins í upphafi næstu viku. Einnig hefur verið skoðað að fá dýpkunarskip erlendis frá í verkefnið. Vegna óhagstæðrar veðurspár er sú leið ekki metin eins fýsileg en slíkt skip yrði lengi á leiðinni til landsins.“ Ráðuneytið muni meta stöðuna og vera í samskiptum við Vegagerðina og sveitarstjórn Vestmannaeyja eins og þurfa þyki.