Þráinn Farestveit, framkvæmdastjóri Verndar fangahjálpar og varaformaður SÁÁ, tjáði sig í fyrsta skipti um ofbeldi sem hann varð fyrir á unga aldri á Landssamráðsfundi gegn ofbeldi í morgun. Hann lýsti mikilvægi þess að koma til móts við börn sem eiga í erfiðleikum.