Frumvarp um almannatryggingar úr nefnd í bullandi ágreiningi

Meirihluti velferðarnefndar hefur afgreitt umdeilt frumvarp um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu og fer það til þriðju og síðustu umræðu. Mikill ágreiningur er um málið og komu stjórnarandstæðingar upp í röðum til að gagnrýna vinnubrögð meirihlutans í nefndinni. Nefndarálit meirhlutans hefur enn ekki verið birt en samkvæmt upplýsingum fréttastofu er frumvarpið í megin dráttum óbreytt en gerðar voru orðalagsbreytingar á frumvarpinu. Frumvarpið hefur sætt gagnrýni frá Seðlabankanum, ASÍ, Samtökum atvinnulífsins, fjármálaráði og fleirum. Bæði er það sagt draga úr hvata til að vinna og að fjárveitingavaldið missi stjórn á útgjöldum ríkisins. Á móti hefur ríkisstjórnin sagt að málið sé pólitísk ákvörðun til að draga úr kjaragliðnun milli launafólks og öryrkja. Frumvarpið fer nú til þriðju og síðustu umræðu áður en greidd verða atkvæði um það. Má fastlega gera ráð fyrir að það verði samþykkt.