Framtíð fyrir fortíð okkar

Bókin Framtíð fyrir fortíð okkar, húsaviðgerðir Gunnars Bjarnasonar kom út í fyrra.  Gunnar Bjarnason (1949–2014) vann við smíðar allan sinn starfsferil og sérhæfði sig einkum í viðgerðum gamalla húsa, auk þess að taka þátt í byggingu Þjóðveldisbæjarins og fleiri tilgátuhúsa, til dæmis Auðunarstofu hinnar nýju á Hólum í Hjaltadal, Eiríksbæjar í Dölum, Þjóðhildarkirkju og Eiríksbæjar […]