„Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“

Hjónin David og Victoria Beckham sendu syni sínum, Brooklyn Beckham, afmæliskveðjur í tilefni dagsins. Brooklyn opinberaði erjur fjölskyldunnar fyrir sex vikum síðan, sakaði foreldrana um að reyna að skemma samband hans við eiginkonuna Nicolu Peltz og sagðist hafa lokað á þau.