Sex Íslendingar ákærðir fyrir að svipta Maltverja frelsi sínu

Ákæran á hendur fólkinu verður þingfest í Héraðsdómi Suðurlands eftir tæpan hálfan mánuð; þremur af sakborningunum sex eru sagðir hafa ruðst inn á heimili mannsins, bundið hendur hans saman með strigalímbandi og veist að honum með margháttuðu ofbeldi. Fórnarlambinu, sem er með maltneskt ríkisfang en af palestínskum ættum, tókst að komast undan þegar hann stóð fyrir utan bíl sem fólkið kom á en einn sakborninganna hljóp hann uppi og sparkaði hann niður. Manninum hafi síðan verið haldið föngnum á heimili sínu , honum hótað, ógnað með hníf og haglabyssu, og beittur grófu ofbeldi, allt í þeim tilgangi að fá upp hjá honum rafræn skilríki og upplýsingar um bankareikninga hans. Því var meðal annars hótað að siglt yrði með hann til Grænlands þar sem honum yrði hent úbyrðis. Þá er einn sakborningur sagður hafa afvegaleitt fólk sem kom að heimili mannsins að leita að honum. Fólkið er sagt hafa blekkt starfsmann Símans í Ármúla til að setja upp rafræn skilríki í síma mannsins; þau er sögð hafa keypt flugmiða til Parísar og þaðan til Möltu í nafni mannsins og síðan millifært 17,6 milljónir af reikningi hans. Eftir að hafa millifært peninginn af reikningum mannsins eru þau sögð hafa keyrt manninn upp á flugstöð, fylgt honum þar inn og neytt hann með hótunum um dóttur hans yrði gerð mein færi hann ekki í flugið. Hann lenti síðan á Möltu þar sem í ljós kom að hann var meðal annars með blæðingu í framheila, nef-og puttabrotinn, búinn að tapa fimmtán tönnum og með fjögur brotinn rifbein.