Sigurbjörn Leifur Þrastarson, sem starfar sem kennari í flugvirkjun í Barein, hefur reynt að komast burt frá landinu eftir að átök hófust í Mið-Austurlöndum um helgina. Hann gagnrýnir viðbrögð íslenskra stjórnvalda og borgaraþjónustunnar sem hann segir að hafi gert lítið til þess að aðstoða hann við að komast aftur til Íslands. Hann segist eiga von á því að koma til Íslands á föstudaginn eða á laugardagsmorgun með hjálp frá vinnuveitanda. „Ég virðist vera á leiðinni í burtu héðan,“ segir Sigurbjörn sem segist að endingu hafa náð að bóka sig í flug með hjálp frá konunglega flugfélaginu í Barein sem hann starfar fyrir. „Ég bað þá um aðstoð eftir að ég komst að því að íslensk stjórnvöld voru með brækurnar niður um sig,“ segir hann. Til þess að komast aftur heim þarf hann að komast til Riyadh, höfuðborgar Sádí-Arabíu þar sem lokað er fyrir flughelgi fyrir ofan Barein. Til þess þarf vegabréfsáritun og tekur það um fimm klukkustundir að keyra til Riyadh frá Barein. 18 vilja sæti í björgunarflugi Utanríkisráðuneytið upplýsti íslenska ríkisborgara í Mið-Austurlöndum í gær um þrjú björgunarflug á vegum stjórnvalda í Austurríki og Slóvakíu. Borgaraþjónustan hefur óskað eftir 18 flugsætum. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu hafa um 175 íslenskir ríkisborgarar í Mið-Austurlöndum haft samband við borgaraþjónustuna sem eigi í virku sambandi við hópinn. Reyndu bara að redda þér sjálfur Sigurbjörn segir að fyrstu svör frá borgaraþjónustunni hafi verið mjög jákvæð. „Takk fyrir að láta okkur vita, við skoðum þetta og við erum að funda með Norðurlandaráði,“ segir hann. Sigurbirni hafi þó þótt ferlið ganga ansi hægt og að ekki hafi verið auðvelt að fá upplýsingar. Skyndilega hafi þó komið nýtt hljóð frá stjórnvöldum þar sem Sigurbjörn hafi verið beðinn að leysa sín mál sjálfur. „Þetta var orðað rosalega pent og endað með ljúfri kveðju en tölvupósturinn sagði „reyndu bara að redda þér flugi sjálfur““ segir Sigurbjörn. „Maður dregur það saman í „við ætlum ekki að gera neitt, reddaðu þér sjálfur“,“ segir hann. Fyrstur kemur, fyrstur fær Eftir að Sigurbjörn fékk svör frá vinnuveitanda sínum að hann fengi hjálp hafi annar tölvupóstur komið frá borgaraþjónustunni um flug frá Riyadh í Sádí Arabíu. „Þar segir að það verði ein flugvél send til Riyadh á vegum Norðurlandaráðs og að þetta sé fyrstu kemur fyrstur fær, það stóð bara orðrétt,“ segir Sigurbjörn. Fleiri íbúum á Norðurlöndunum sem fastir séu í Mið-Austurlöndum hafi einnig verið beint í þá vél. Sigurbjörn gagnrýnir einnig að honum hafi ekki verið boðin aðstoð af stjórnvöldum við að komast til Riyadh né aðstoð við að afla vegabréfsáritunar til að komast inn í Sádí-Arabíu. „Það var ekkert minnst á aðstoð með vísa og engar leiðbeiningar um það hvernig maður ætti að komast þangað,“ segir Sigurbjörn. „Það var bara sagt að það væru tvö flug frá Amman og eitt flug frá Riyadh.“ Sigurbjörn segir að þar sem hann hafi fengið staðfestingu um hjálp frá vinnuveitanda og að þær áætlanir hafi litið vel út hafi hann ekki boðað sig um borð vélina. „Fyrst að þetta er fyrstur kemur fyrstur fær og ég er kominn með aðra leið þá ætla ég ekki að taka sætið af einhverjum sem kannski á ekki annarra kosta völ,“ segir hann. Ein brú sem tengir Barein við Sádí-Arabíu Sigurbjörn segir miklar öryggisráðstafanir á brúnni sem tengir Barein við Sádi-Arabíu og því sé erfitt að komast frá eyjunni. „Fyrir utan það að hún er hugsanlegt skotmark,“ segir Sigurbjörn „Þeir hafa líka áhyggjur af hryðjuverkaógn.“ Hins vegar hafi Sigurbjörn rætt við kollega sinn sem staddur er í Riyadh sem hafi sagt honum að allt sé með kyrrum kjörum þegar þangað er komið. „Það er bara allt við það sama þar, maður finnur ekkert fyrir þessu stríði þegar maður er kominn til Riyadh,“ segir hann „Krítíska dæmið er að komast yfir brúnna og aðeins inn í land. Hann telur líklegt að einn af yfirmönnum hans komi til með að keyra hann sjálfur. „Þeir eru allir af vilja gerðir hérna,“ segir Sigurbjörn. „Þeir hringdu í sendiráðið fyrir Sádi Arabíu hérna til að greiða fyrir með VISA og ganga frá því að það verði ekkert vesen.“ Hann segist hafa fengið góðan stuðning frá fyrirtækinu sem hann hefði talið að ætti að koma frá borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins. Stanslausar sprengingar Fréttastofa ræddi við Sigurbjörn um helgina, stuttu eftir að Íran hóf loftárásir á eyjuna. Sigurbjörn segir svipað ástand í Barein og þá. „Það eru bara stanslausar sprengingar hérna,“ segir hann. Flugher Barein og og herskip Bandaríkjanna fyrir utan eyjuna nái að skjóta niður meirihluta þeirra dróna og flugskeyta sem skotið er að landinu. Þó hafi um 10 flugskeyti og/eða drónar náð í gegn og hafi lent ýmist á herstöðvum en einnig byggingum í Barein. Sigurbjörn segir að gluggarnir í íbúðinni hans nötri undan sprengingunum. „Ég er alltaf með dregið fyrir allan sólarhringinn upp á það að ef sprenging verður of nálægt og gluggarnir springa þá kemur ekki glerbrot inn,“ segir hann. „Þetta er bara búið að vera svona.“