Hraðlygni leið­sögu­maðurinn ekki eins­dæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“

„Það má gera ráð fyrir því að það séu fleiri og fleiri tugir — ef ekki hundruð — svona aðilar sem eru starfandi á Íslandi,“ segir Þór Bínó, varaformaður deildar leiðsögufólks hjá VR, um mál bresks karlmanns sem vísað var úr landi eftir að hafa starfað sem leiðsögumaður í leyfisleysi og svo logið ítrekað að lögreglu um ferðir sínar á Íslandi.