Gerir lítið úr klofningi meðal borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins

Borgarfulltrúarnir Marta Guðjónsdóttir og Kjartan Magnússon sátu hjá þegar greidd voru atkvæði um tillögu Hildar Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðismanna í Reykjavík, á borgarstjórnarfundi í gær. Tillagan fól í sér að hefja viðræður við ráðherra og bæjarstjóra nágrannasveitarfélaga um fjármögnun samgöngusáttmálans og endurskoðun ákvæða hans. Kjartan segir að þau Marta hafi talið eðlilegra að í tillögunni yrði tekin eindregin afstaða gegn borgarlínu. Í bókun þeirra var lagt til að áhersla yrði lögð á að efla núverandi strætisvagnakerfi í stað þess að ráðast í gerð borgarlínu. Stór flokkur sem rúmi margar skoðanir Kjartan segir varla hægt að tala um klofning innan borgarstjórnarflokksins. „Hins vegar voru það ákveðin vonbrigði að aðrir borgarfulltrúar flokksins voru ekki tilbúnir til að standa að bókuninni með okkur. Þá veltir maður því fyrir sér hvort það sé verið að ryðja brautina fyrir borgarlínu. Það kemur bara í ljós. Þetta er stór flokkur og innan hans rúmast margar skoðanir. Þannig að nei, ég held að það sé ekki hægt að tala um klofning,“ segir Kjartan. Telur meirihluta andsnúinn Borgarlínu Hann segir Borgarlínuna alltaf hafa verið umdeilda innan raða Sjálfstæðisflokksins. „Það vakti athygli á kjörtímabilinu þegar borgarfulltrúar flokksins greiddu ekki atkvæði eins. Fjórir af sex greiddu atkvæði gegn Borgarlínu en einn greiddi atkvæði með Borgarlínu, varaborgarfulltrúi, og svo var einn sem sat hjá. Málið er umdeilt og hefur verið umdeilt í hópnum eins og flestir vita. En í flokknum held ég að sé mikill meirihlutavilji fyrir því að hafna Borgarlínu,“ segir Kjartan Magnússon borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.