Sex einstaklingar eru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann, fjárkúga hann og beita hættulegu og stórfelldu ofbeldi í Reykholti fyrir tveimur árum. Þau eru sökuð um að hafa ruðst inn á heimili hans og ógnað með hníf og haglabyssu. Þá hafi þau krafist þess að komast í bankareikninga hans og að fá að misnota rafræn skilríki. Að endingu hafi tæplega átján milljónir króna verið millifærðar af reikningi hans.