Aston Villa tekur á móti Chelsea í mikilvægum leik fyrir bæði lið í baráttunni um Meistaradeildarsæti í ensku úrvalsdeildinni. Fyrir leikinn er Aston Villa í fjórða sæti með 51 stig. Chelsea er í 6.sæti með 45 stig. Báðum liðum hefur fatast flugið upp á síðkastið. Leikurinn hefst klukkan hálf átta og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport 4.