Lögregla kannar ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar sem allsherjar-og menntamálanefnd mæltist til að yrði gerð fyrir þremur árum. Samkynhneigð litin hornauga Ummæli Jakobs Rollands, kaþólska kanslarans á Íslandi, í útvarpsþættinum Meiningu á Rás 1 um hinsegin fólk og viðhorf kaþólsku kirkjunnar til þeirra ættu ekki að koma neinum á óvart. Afstaða kaþólsku kirkjunnar hefur legið fyrir og ólíklegt að hún eigi eftir að breytast; sama hver páfinn er í Róm. Í kaþólskri trú er hjónaband karls og konu eitt af sjö sakramentum kirkjunnar, sem eru hin helga arfleið frá Guði, eins og það er orðað á vef kaþólsku kirkjunnar. Samkynja hjónabönd eru álitin syndsamleg og kirkjan telur það heilaga skyldu sína að leiðbeina fólki frá villu vegar. Kaþólska kirkjan er langt frá því eina starfandi trúfélagið á Íslandi sem hefur horn í síðu hinsegin fólks; samkynhneigð er litin hornauga í íslam og Vottar Jehóva segja á vefsíðu sinni að fólk sem hrífist af sama kyni þurfi alls ekki að vera samkynhneigt, það sé tilfinning sem geti liðið hjá. Líði hún ekki hjá geti samkynhneigðir sýnt sjálfstjórn langi þá raunverulega að gleðja Guð. Söfnuðurinn bjó reyndar líka til myndband um samkynhneigð sem virtist markaðssett fyrir börn. Full ástæða til að kanna hvort trúfélög beiti bælingarmeðferðum Ummæli Jakobs í vikunni hafa vakið upp spurningar um hvort kaþólska kirkjan stundi bælingarmeðferð sem var bönnuð með lögum í júní fyrir þremur árum. Í því felst að hver sem með nauðung, blekkingum eða hótunum fái einstakling til að undirgangast ógagnreynda meðferð í þeim tilgangi að bæla eða breyta kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu skuli sæta sektum eða fangelsi. Helga Vala Helgadóttir var flutningsmaður nefndarálits allsherjar- og menntamálanefndar um þetta bann og hún telur fyllstu ástæðu til að kannað verði hvort trúfélög á Íslandi, og þá ekki aðeins kaþólska kirkjan, beiti bælingarmeðferðum. „Já, það var nú þannig að allsherjar- og menntamálanefnd mæltist til þess að dómsmálaráðuneytið færi í skoðun á því þegar þetta lagaákvæði var samþykkt. Það kemur fram í nefndaráliti, tilmæli til ráðuneytisins að fara í það að skoða umfang bælingarmeðferða á Íslandi og í nágrannalöndum því það hefur verið rannsakað þar líka.“ Nánar var fjallað um málið í Speglinum á Rás 2. Innslagið má hlusta á í spilaranum hér að neðan. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ætlar að taka ummæli kanslara kaþólsku kirkjunnar til skoðunar og meta hvort tilefni sé til að hefja frumkvæðisathugun. Dómsmálaráðherra hefur beðið skrifstofu jafnréttismála að gera úttekt á umfangi bælingarmeðferðar.