Tár eftir hverja sýningu

„Ég var búin að vera með þessa hugmynd í maganum lengi,“ segir leikstjórinn, dansarinn og söngkonan Erna Kanema Mashinkila sem setti upp verkið Þegar ég sé þig sé ég mig í Borgarleikhúsinu. Hugmyndin spratt út frá vangaveltum Ernu Kanemu um hvort það væri til fólk sem deildi svipaðri reynslu og hún og væri til í að vera á sviði.