Veitur ætla að bora eftir heitu vatni á Geldinganesi í Reykjavík sem er 220 hektarar að flatarmáli. Byrjað verður að bora síðar í mars. Við boranir á Geldinganesi á tíunda áratug síðustu aldar fannst 90 til 100 stiga heitt jarðhitakerfi . Holurnar, sem þá voru boraðar, gáfu ekki nægilega mikið vatn. Veitur ætla að nú að bora holur sem verða allt að einn og hálfur kílómetri að dýpt. Markmiðið er að finna betri lekt, eins og kallað er, svo nýta megi jarðhitakerfið fyrir hitaveitu. Framkvæmdir fyrir borholur ekki Sundabraut Síðustu vikur hafa íbúar í Grafarvogi nærri Geldinganesi orðið varir við nær stöðuga umferð vörubíla yfir eiðið í Geldinganes. Ekki var verið að undirbúa lagningu Sundabrautar heldur var verið að flytja möl til að styrkja veginn þvert yfir nesið og útbúa borplan sem nú er tilbúið. „Það fóru fimm þúsund rúmmetrar rúmir í þetta plan hér. Það eru nokkrar ferðir,“ segir Marinó Pálmason framkvæmdastjóri Dráttarbíla sem sér um jarðvinnuna. Mikið gengur á á Geldinganesi í Reykjavík. Þar er allt að verða klárt fyrir stóra jarðbora sem eiga bora djúpt í iður jarðar til að finna vinnanlegt heitt vatn. Hér á náttúrulega bara að byggja, segir jarðverktakinn. Klárt fyrir borun í þarnæstu viku Fyrsta holan verður boruð með 40 tonna jarðbor en hinar með öflugum 100 tonna bor. Holurnar verða tólf til fimmtán hundruð metra djúpar. „Við erum að fleyga fyrir borholurörum svona stálrörum sem verður steypt hérna niður.“ Hvað þarftu að fara langt? „Sex metra frá yfirborði plans.“ Hvenær heldurðu að þið verðið búnir svo hægt sé að koma með borinn hingað? „Svona eftir sirka viku, kannski rétt rúma viku.“ Gangi rannsóknaboranir vel verða boraðar fleiri holur á næstu tveimur til þremur árum. Þá verður hægt að bæta við hitaveitu á höfuðborgarsvæðinu því íbúum fjölgar og gert er ráð fyrir þúsundum nýrra íbúða á næstu árum. Vill byggð í Geldinganes Mjög vindasamt getur verið á Geldinganesi enda opið fyrir hafi. Marinó líkar mjög vel á nesinu: „Stundum er alger paradís, bara logn og blíða og maður horfir á hvalina hérna. Og svo getur líka verið erfitt bara að komast út úr tækjunum sko. Hérna á náttúrulega bara að byggja, sko, bara fulla ferð. Hérna er flott að vera.“