Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir hlaut verðlaun Hagþenkis, félag höfunda fræðirita og kennslugagna, fyrir útgáfu árið 2023. Verðlaunin hlaut hún fyrir ritið Meyjar og völd. Rímur og saga af Mábil sterku. Bókin er gefin út af Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og ritstjóri var Haukur Þorgeirsson. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Þjóðarbókhlöðunni í dag. Valgerður segir að rímurnar af Mábil sterku opni glugga til fortíðar sem séu ekki svo ólíkir nútímanum. „Þær segja sögu af kynjamisrétti, græðgi og siðleysi og líklega eru þær ortar sem níð um einhverja konu eða konur en á nútímamáli heitir það einelti.“ Hún segir það mikinn heiður að hafa hlotið verðlaunin og að fá nafn sitt skráð með þeim sem áður hafa hlotið viðurkenninguna. Valgerður rekur ferðaþjónustu á Leirubakka í Rángárvallasýslu og hefur eins staðið að margs konar menningarstarfi. Hún hefur skrifað greinar um bókmenntir og þjóðlegan fróðleik og árið 2020 gaf hún út ljóðabók. Safnað ómetanlegum upplýsingum Árið 1993 lauk Valgerður BA-prófi í íslensku frá heimspekideild Háskóla Íslands og árið 2004 lauk hún meistaraprófi í íslenskum bókmenntum frá sama skóla og skrifaði þá um rímurnar af Mábil. Valgerður hefur lengi síðan unnið að því að bæta við og útvíkka ritið og rannsóknina. Í rökstuðningi viðurkenningarráðs Hagþenkis segir: „Við völdum þetta rit umfram önnur vegna þess að hér er brotið blað í rannsóknum á rímum hér á landi. Vinnubrögðin eru einstaklega vönduð og höfundur hefur leitað víða fanga við að opna fyrir nútímafólki heim sem hefur verið okkur flestum lokaður. Hún hefur safnað saman ómetanlegum upplýsingum um þessar einstöku rímur – og um leið opnar hún augu lesenda fyrir hversu flókið ferli svona rannsókn getur verið.“ Hagþenkir hefur frá árinu 1986 veitt viðurkenningu fyrir fræðirit, námsgögn eða aðra miðlun fræðilegs efnis til almennings. Árið 2006 var tekin upp sú nýbreytni að tilnefna tíu höfunda og bækur er til greina kæmu en að valinu stendur sérstakt viðurkenningarráð. Viðurkenning Hagþenkis felst í sérstöku viðurkenningarskjali og verðlaunafé upp á 1.500.000 krónur.