Hola í vegi tók fjóra bíla úr um­ferð á van­ræktum vegkafla

Slæm hola í Elliðavatnsvegi í Hafnarfirði tók fjóra bíla úr umferð í morgun. Búið er að gera við holuna en vegfarandi segir að viðhald á vegkaflanum sé lítið sem ekkert. Hann vonast til að bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og Vegagerðin gyrði sig í brók.