Lokkaðir til Rússlands með gylliboðum en síðan sendir á vígvöllinn

Rússar hafa fengið meira en þúsund Keníumenn til að berjast á vígvellinum í Úkraínu. Flestum þeirra var lofað vel launuð störf en voru síðan sendir á vígvöllinn þar sem fáir lifa af. Charles Waithaka var lokkaður til Rússlands undir fölskum formerkjum þar sem hann átti að fá vinnu sem bifvélavirki fyrir rússneska herinn. Hann var sendur að landamærum Rússlands og Úkraínu eftir stutta herþjálfun. „Einn sem var með honum staðfesti að hann væri látinn. Hann steig á jarðsprengju og lést,“ segir Bibiana Wangari, móðir Waithaka. Dancan Chege var boðin vinna sem bílstjóri í Rússlandi. Þegar þangað var komið var hann sendur í stríð og honum skipað að gera árásir á byggingar Úkraínumanna. Þegar hann neitaði var honum hótað lífláti. „Yfirmaðurinn sagði þá að ef ég neitaði, þá drepum við þig.“