„Erum að fara í annað stríð“

Elín Klara Þorkelsdóttir var maður leiksins og átti stórkostlegan leik þegar Ísland vann frækinn sigur á Svartfjallalandi 28:27 í undankeppni EM 2026. Elín Klara skoraði 12 mörk í öllum regnbogans litum og bar íslenska liðið á herðum sér á tímabili.