Fyrsta tap Carricks kom gegn 10 Newcastle-mönnum

Newcastle lagði Manchester United á dramatískan hátt á St. James Park í Newcastle í 29. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld, 2:1. Newcastle-menn voru manni færri allan seinni hálfleikinn en varamaðurinn William Osula tryggði sigurinn í uppbótartíma með sannkölluðu draumarki.