Bráðamóttaka Landspítalans er yfirfull og hefur ástandið aldrei verið verra að mati starfsfólks. Átta starfsmenn greindust með berklasmit í byrjun árs og í febrúar sendu stjórnendur spítalans Ölmu Möller heilbrigðisráðherra minnisblað um hversu alvarleg staðan væri orðin. Í minnisblaðinu óskuðu starfsmenn bráðamóttöku eftir því að 40-50 sjúklingar yrðu færðir annað. Alma Möller segir ljóst að staðan sé slæm og vandinn langstæður, því taki tíma að vinda ofan af hlutunum. Síðan 13. febrúar hafa 50 aldraðir einstaklingar verið útskrifaðir af bráðamóttöku Landspítalans. Alma segir það þó ekki duga til vegna þess að fólk sem þarf á hjúkrunarrýmum að halda bætist sífellt við á bráðamóttöku. Heilbrigðisráðherra segir að stefnt sé á að opna 100 hjúkrunarými í Urðarhvarfi eftir tvær vikur. Ófremdarástand hefur verið á bráðamóttöku Landspítalans og segja starfsmenn ástandið verra en nokkru sinni fyrr. Hjúkrunarrými í Urðarhvarfi 100 talsins Til stendur að opna nýtt hjúkrunarheimili, eða svokallað biðrými, í Urðarhvarfi í Kópavogi á næstu vikum. Rýmið á að geta tekið inn allt að 100 sjúklinga í senn. Alma bindur vonir við að hægt verði að hefja starfsemi þar eftir tvær vikur og segir hún Urðarhvarf vera þeirra haldreipi. „Það verða auðvitað ekki fluttir 100 í einu en það á að byrja, á ég von á í mars.“ Alma býst við því að það taki nokkrar vikur að koma rýminu í Urðarhvarfi upp í full afköst. Hún segir að engin lausn sé fljótvirk og að líklega séu enn vikur í það að staðan fari að batna. „Urðarhvarf er okkar haldreipi.“