Heppinn Íslendingur vann tæpar tvær milljónir króna í útdrætti kvöldsins í Víkingalottó. Miðahafinn var með fimmfaldan þriðja vinning á kerfismiða og fær því um tvær milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á vefnum lotto.is.