Öldungadeildin felldi tillögu sem hefði gert forsetanum að stöðva árásir á Íran

Öldungadeild Bandaríkjaþings felldi í kvöld tillögu sem miðar að því að takmarka heimildir Donalds Trump forseta til að halda áfram árásum á Íran. Einnig hefði forsetinn þurft að draga allt herlið til baka uns þingið gæfi heimild fyrir stríðsrekstrinum. Demókratinn Tim Kaine og Repúblikaninn Rand Paul lögðu tillöguna fyrir öldungadeildina. Repúblikanar hafa meirihluta í deildinni og atkvæði féllu nánast alveg eftir flokkslínum, 53 atkvæði gegn 47. Fjórir Repúblikanar hefðu þurft að stíga á vagninn með Paul til að koma tillögunni í gegn en einn Demókrati greiddi atkvæði gegn henni. Demókratar segja Trump hafa brotið gegn ákvæðum stjórnarskrár með því að sneiða hjá þinginu þegar hann fyrirskipaði hernaðaraðgerðir ásamt Ísraelsmönnum gegn Íran en Repúblikanar hafa að stærstum hluta stutt ákvörðunina. Nokkrir repúblikanaþingmenn hafa gefið í skyn að fulltingi þeirra þverri dragist hernaðurinn á langinn. Kaine ítrekaði á blaðamannafundi að engin ummerki væru um að bein ógn hefði stafað frá Íran meðan Lindsey Graham, einn ötulasti stuðningsmaður Trumps, fagnaði árásunum. „Þeir meina hvert orð þegar þeir óska Bandaríkjunum tortímingar,“ sagði Graham. Svipuð tillaga verður rædd í fulltrúadeildinni í dag sem þyrfti tvo þriðju hluta atkvæða til að koma í veg fyrir að forsetinn beiti neitunarvaldi.