Alma Möller, heilbrigðisráðherra ræddi um stöðu geðheilbrigðisþjónustu einhverfra í Kastljósi kvöldsins, nauðsyn sé að efla kerfið. Alma var spurð út í viðbrögð við umfjöllun fréttaskýringarþáttarins Kveiks í gær, þar sem rætt var við ungt einhverft fólk sem segist lenda á veggjum innan heilbrigðiskerfisins. Hún segir að styrkja þurfi þjónustu á öllum stigum fyrir einhverfa og vill setja á laggirnar einhverfusetur, í samstarfi við félagsmálaráðuneytið og barnamálaráðuneytið, þar sem hægt væri að veita greiningu og ráðgjöf. Hún hefur þegar sent inn erindi til beggja ráðuneyta. „En auðvitað tekur langan tíma að byggja upp svona úrræði og það er þessi mikla innviðaskuld, meðal annars í geðheilbrigðismálum og í þessum úrræðum fyrir einhverfa. Þannig við þurfum auðvitað bara að gera betur.“