Benjamín Netanjahú segir Ísrael og Bandaríkin hafa náð „sögulegum árangri“ í stríðinu gegn Íran sem hófst á laugardaginn var. Talsmaður forsætisráðherrans segir samvinnu ríkjanna tveggja tryggja öryggi ríkisborgara þeirra og alls hins siðmenntaða heims. Atlagan gegn Íran hafi verið nauðsynleg í ljósi þess að klerkastjórnin hefði verið að endurvekja kjarnorkuáætlun sína í nýjum neðanjarðarbyrgjum. Einnig hafi verið vísbendingar um að Íranir hygðust ráðast á Ísrael og bandarískar herstöðvar í Mið-Austurlöndum. Íranir skutu nokkrum eldflaugum í átt að Ísrael í nótt samkvæmt upplýsingum Ísraelshers og ríkisfjölmiðils Írans. Loftvarnarflautur ómuðu víða um land, þar á meðal í stórborginni Tel Aviv. Engar fréttir hafa borist af manntjóni eða skemmdum á byggingum. Íranir höfðu gert yfir sjö klukkustunda hlé á árásum þegar tilkynning barst um að eldflaugarnar stefndu í átt að Ísrael. Herinn hefur boðað afléttingu á hluta þeirra ferðatakmarkana sem gilt hafa innan Ísrael með þeim rökum að talsvert hafi dregið úr árásarþunga Írana. Þrír drepnir í árás nærri flugvelli í Beirút Þrír voru drepnir í loftárás Ísraels á hraðbraut nærri flugvelli í Beirút, höfuðborg Líbanons. Heilbrigðisráðuneyti landsins greinir frá þessu og segir sex til viðbótar hafa særst í árásinni. Reuters hefur eftir talsmanni Ísraelshers að atlögu hefði verið beint að tveimur manneskjum í Beirút án þess að það sé tíundað frekar. Fyrr um daginn gerði Ísraelsher árás á höfuðvígi Hezbollah í suðurhluta Beirútborgar. Öflug sprenging varð í bresku olíuskipi sem lá við stjóra um þrjátíu sjómílur undan ströndum Kúveit. Samkvæmt upplýsingum bresku siglingamálastofnunarinnar UKMTO á samfélagsmiðlinum X er áhöfnin óhult en olía hefur lekið frá skipinu. Hún gæti valdið mengun að sögn stofnunarinnar. Skipstjórinn segir að smærri bátur hafi siglt brott skömmu eftir að sprengingin laskaði bakborðshlið olíuskipsins verulega.