Yfir tvö hundruð fórust á þriðjudag þegar skriða féll í kólumbít námu í austanverðu Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó. Skæruliðar í uppreisnarsveitum M23 á ferð um borgina Goma.EPA-EFE / Stringer Ráðuneyti námumála greindi frá þessu í gær og sagði úrhellisrigningu hafa hrundið skriðunni af stað. Það segir um sjötíu börn meðal hinna látnu og að fjöldi slasaðra hefði verið fluttur á sjúkrahús í borginni Goma. Áður hafði háttsettur talsmaður M23-uppreisnarsveita Tútsa, sem ráða námunni, sagt fimm eða sex hafa týnt lífi. Ekki hafa borist viðbrögð frá sveitunum eftir að ráðuneytið birti sínar tölur. Yfir tvö hundruð létu lífið vegna jarðskriðu í sömu námu í janúar.