Mikil fjölgun í nýskráningum bíla fyrstu tvo mánuði ársins — rakið til vörugjaldsbreytinga um áramót

Fyrstu tvo mánuði ársins voru samtals 76 prósentum fleiri fólksbílar nýskráðir en á sama tíma í fyrra, eða alls 2.200. Sú fjölgun er að miklu leyti drifin áfram af kaupum ökutækjaleiga, sem eignuðust 223 prósent fleiri bíla, að því er segir í fréttatilkynningu Bílgreinasambandsins. Samanlagt voru skráðir 1.423 bílaleigubílar í janúar og febrúar, sem venjulega er rólegur tími í nýskráningum slíkra bíla. „Aukningin er að mestu leyti tímasetningaráhrif vegna breytinga á vörugjaldi um áramótin en ekki vísbending um aukna eftirspurn eftir bílaleigubílum,“ segir Bílgreinasambandið. Einstaklingar keyptu hins vegar fimmtán prósent færri bíla en á sama tíma á liðnu ári, eða samtals 534, um sex af hverjum tíu þeirra rafknúnir. Svipað var upp á teningnum hjá öðrum fyrirtækjum en bílaleigum sem keyptu um þriðjungi fleiri farartæki en í fyrra. Tengiltvinnbílar voru næstir í röðinni hjá hvorum tveggja. Tölur um innflutning benda til að hluti nýskráðra bíla hafi verið fluttur inn fyrir áramót þegar umtalsverðar breytingar voru gerðar á vörugjaldi á ökutæki, að mati Bílgreinasambandsins. Það segir að áhugavert verði að sjá hversu lengi áhrifin munu vara inn á árið. Hækkanirnar höfðu mest áhrif á verð tvinn- og tengiltvinnbíla sem eru mest seldu farartækin það sem af er ári, þökk sé bílaleigunum. Einnig varð breyting á aðferðum við prófun tengiltvinnbíla þannig að skattskyld losun þeirra hækkar og skattbyrði kaupenda þar með.