Rannsóknarnefnd á vegum Bandaríkjaþings hefur ákveðið að boða dómsmálaráðherrann Pam Bondi aftur til yfirheyrslu vegna meðferðar á skjölum tengdum kaupsýslumanninum og kynferðisbrotamanninum Jeffreys Epstein. Bondi staðhæfir að ráðuneytið hafi látið öll skjöl honum tengd af hendi en repúblikanaþingmaðurinn Nancy Mace er meðal þeirra sem efast um það. Mace var ein fárra Repúblikana sem kröfðust birtingar Epstein-skjalanna, segir málið eitthvert mesta laumuspil í sögu Bandaríkjanna og að kynferðismansalshringur hans sé mun víðfeðmari en látið hafi verið uppi. Mace telur milljónir skjala enn á huldu. „Þótt þrjár milljónir skjala hafi verið birtar hefur allur sannleikurinn ekki verið sagður. Myndskeið vantar, hljóðupptökur vantar, ferðadagbækur vantar,“ segir Mace í færslu á X. Hún vill að dómsmálaráðherra svari hví henni sé meira í mun að vernda valdafólk en að framfylgja réttlætinu sem fórnarlömb Epsteins og bandaríska þjóðin verðskuldi. Upp úr sauð við yfirheyrslur nefndarinnar yfir Bondi í febrúar.