Kostnaður við nýjan orkusjóð vex ríkisstjórn og kjósendum í augum

Skoðanakannanir benda til að svissneskir kjósendur felli tillögu um stofnun umfangsmikils loftslagssjóðs í þjóðaratkvæðagreiðslu á sunnudag. Um fimmtíu til sextíu prósent hafa sagst andvíg í nýjustu könnunum. Ríkisstjórnin hvetur kjósendur til að segja nei, enda þyngi sjóðurinn róður ríkissjóðs um of. Tillagan er runnin undan rifjum Jafnaðarmannaflokksins og Græningja sem vilja að hálfu til einu prósenti af vergri þjóðarframleiðslu verði árlega varið í sjóðinn sem ætlað er að fjármagna leiðir til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, bæta orkunýtingu og þróun endurnýjanlegra orkugjafa. Þannig megi auðvelda glímuna við hnattræna hlýnun og afleiðingar hennar. Jafnaðarmenn og græningjar segja að þótt framlög til málaflokksins tvöfaldist með stofnun sjóðsins sé þó enn kostnaðarsamara að gera ekkert. Ekki aðeins verði hann til að flýta orkuskiptum heldur skapi hann mikilvæg störf og auki á hagvöxt innanlands. Kannanir benda hins vegar til að Svisslendingar flykkist um tillögu um að tryggt verði í stjórnarskrá að áfram megi greiða fyrir vörur og þjónustu með seðlum og mynt.