Öldungadeildin fjallar um tilnefningu Kevins Warsh í stöðu seðlabankastjóra

Kevin Warsh stefnir hraðbyri í átt að seðlabankastól Bandaríkjanna.EPA / WILL OLIVER Donald Trump hefur formlega útnefnt Kevin Warsh sem næsta seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Öldungadeildin þarf að staðfesta skipun Warsh og henni hefur þegar borist tilkynning um útnefninguna samkvæmt tilkynningu frá Hvíta húsinu. Warsh er 55 ára og hefur meðal annars starfað fyrir Morgan Stanley fjárfestingabankann. Fráfarandi bankastjóri, Jerome Powell, hefur lengi átt í útistöðum við Trump sem hefur kvartað yfir hve lítið og hægt bankinn hefur lækkað vexti. Skipunartíma Powells lýkur í maí.