Alls var landað 814 tonnum af bolfiski í Ísafjarðarhöfn í febrúarmánuði. Ísfisktogarinn Páll Pálsson ÍS fór 8 veiðiferðir í mánuðinum og kom með 606 tonn að landi. Frystitogarinn Júlíus Geirmundsson ÍS landaði einu sinni og var með 203 tonn af afurðum. Loks landaði Ásdís ÍS frá Bolungavík rækju einu sinni tæplega 5 tonnum.