Katrín og Hafdís urðu eftir heima — Ethel kölluð út

Stórkostlegur sigur íslenska kvennalandsliðsins í handbolta á Svartfjallalandi í gærkvöld reyndist dýrkeyptur. Bæði Hafdís Renötudóttir og Katrín Tinna Jensdóttir meiddust í leiknum og fóru ekki með liðinu til Svartfjallalands í nótt. Hafdís og Katrín fengu báðar höfuðhögg og spiluðu ekki meira eftir það. Hafdís hafði átt flottan leik áður en hún neyddist til að fara af velli og endaði með 10 varin skot og 32% markvörslu. Ethel Gyða Bjarnasen, markvörður Fram, var kölluð til í gærkvöldi og ferðaðist með hópnum til Svartfjallalands í nótt. Ethel hefur ekki spilað landsleik. Í stað Katrínar Tinnu fór Alexandra Líf Arnarsdóttir með til Svartfjallalands en Alexandra var í hóp í gærkvöld vegna meiðsla Theu Imani Sturludóttur og Ölfu Brár Hagalín. Leikur Íslands og Svartfjallalands fer fram á sunnudaginn úti í Svartfjallalandi. Leikurinn hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu á RÚV.