Hækkanir muni hafa veruleg áhrif

„Nú, þegar við erum að horfa upp á verð á olíu, gasi og fleiri orkugjöfum rjúka upp á heimsmarkaði, þá er það alveg ljóst að það mun hafa verulegar afleiðingar fyrir okkur Íslendinga, verði þessi stríðsátök langvarandi,“ segir Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins í samtali við Morgunblaðið.