Um­ferðar­öryggi í brenni­depli á Forvarnaráðstefnu VÍS

Forvarnaráðstefna VÍS hefur verið haldin árlega frá árinu 2010 og hefur fest sig í sessi sem fjölsóttasti vettvangur landsins fyrir umræðu um forvarnir og öryggi í íslensku samfélagi. Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á mikilvægi markvissra forvarna, miðla þekkingu og hvetja fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga til að taka skref í átt að öruggara samfélagi.  Ingibjörg Ásdís Ragnarsdóttir framkvæmdastjóri sölu og þjónustu hjá VÍS fjallar hér um ráðstefnuna.