Hjálmar Waag Árnason var gestur Heimsgluggans á Morgunvaktinni á Rás 1 og ræddi við Boga Ágústsson um stjórnmál í Færeyjum en frændur okkar og frænkur ganga til kosninga síðar í mars. Hjálmar á ættir að rekja til Færeyja og er öllum hnútum kunnugur. Hann telur líklegt að hægri stjórn taki við eftir kosningar en Jafnaðarmenn hafa farið með stjórnarforystu síðustu ár. Þá var rætt um mismunandi yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran þar sem ýmsar skýringar hafa verið á lofti. Þingrof og boðun kosninga kom á óvart Hjálmar Árnason sagði að það hefði komið öllum á óvart að Aksel V. Johannesen, lögmaður eða forsætisráðherra, hefði boðað til kosninga. En ef litið væri til atburða síðustu tveggja ára mætti sjá merki núnings og flokkarnir hefðu verið þreyttir hver á öðrum. Tekist hefði verið á um hækkun eftirlaunaaldurs og fyrirhuguð neðansjávargöng til Suðureyjar. Þá hefðu lagabreytingar um þungunarrof verið mikið deilumál. Dramatík við þingrof Tillaga stjórnarinnar um Suðureyjargöng var samþykkt með miklum meiirhluta í Lögþinginu og næsta mál á dagskrá átti að vera hækkun eftirlaunaaldurs. Þá laumaði Johannesen lögmaður miða að þingforseta og eins og sjá má í frétt færeyska Kringvarpsins var Ruth Vang, formanni Framsóknar, mjög brugðið. Vinstri samsteypustjórn á undir högg að sækja Færeyska stjórnin tók við eftir kosningar í desember 2022 og í henni sitja Jafnaðarmenn, Þjóðveldi og Framsókn. Hjálmar segir færeyska Framsóknarflokkinn klofning úr Fólkaflokknum. Færeyski Framsóknarflokkurinn og sá íslenski séu óskyldir. Allar líkur séu á að Fólkaflokkurinn , sem er samstarfsflokkur Sjálfstæðisflokksins á Íslandi, bæti verulega við sig fylgi. Þá séu líkur á því að Beinir Johannesen verði lögmaður. Hann er bróðursonur Aksels núverandi lögmanns. Ósamræmi í málflutningi bandarískra ráðamanna um árásir á Íran Ráðamenn í Washington hafa nefnt ýmsar skýringar á því af hverju ráðist var á Íran. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við upphaf árása á Íran að tilgangur þeirra væri að verja Bandaríkin gegn yfirvofandi árásum Írana og gera klerkastjórninni ókleift að stunda hermdarverk. Hann hvatti einnig írönsku þjóðina til að taka völdin í landinu þegar hernaði lyki. Föðurlandsvinir ættu að vera hugrakkir og áræðnir og taka völdin, Bandaríkjamenn stæðu með þeim. Rubio sagði Ísraelsmenn hafa ákveðið árás Marco Rubio utanríkisráðherra sagði svo fyrr í vikunni að Bandaríkjastjórn hefði vitað að Ísraelsmenn ætluðu að gera árásir á Íran og að Íranir myndu svara slíkri árás með því að ráðast á bandarísk skotmörk og að ef Bandaríkjamenn yrðu ekki fyrri til yrði mannfall meira og þá væri hann að svara spurningum um af hverju stjórnvöld hefðu ekki gripið til ráðstafana. Pete Hegseth stríðsráðherra sagði í fyrradag að þetta væri ekki stríð til að skipta um stjórn en vissulega hefði verið breytt um stjórn og veröldin væri betri þess vegna. Lindsay Graham, öldungadeildarþingmaður og einn tryggasti stuðningsmaður Trumps, sagði hins vegar í umræðum í þinginu í gærkvöld að munurinn á honum og þingmönnum Demókrata væri að þeir vildu stöðva árásirnar, hann vildi að Íransstjórn hryndi. Hér má heyra Heimsglugga vikunnar Færeyingar ganga til kosninga 26. mars og útlit er fyrir að hægristjórn taki við af stjórn undir forystu Jafnaðarmanna. Yfirlýsingar bandarískra ráðamanna um ástæður árása á Íran voru einnig til umræðu í Heimsglugga vikunnar.