Hvað geta stjórnendur og millistjórnendur í verslunar- og þjónustugreinum gert til að nýta tækni af skynsemi, efla mannauðinn og skapa sjálfbæran og árangursríkan rekstur? Þessir þættir og fleiri til verða umfjöllunarefni ráðstefnunnar UPPBROT sem Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) halda árlega og verður að þessu sinni haldin 12. mars á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll milli kl. 13 og 17.