Þetta var gott gærkvöld fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni því liðið vann sinn leik á meðan Manchester City tapaði tveimur stigum á heimavelli. Arsenal er því komið með sjö stiga forskot á toppnum en gagnrýni á spilmennsku liðsins minnkar ekkert eftir frammistöðuna í 1-0 sigri á Brighton.