Utanríkisráðherra segir það í skoðun að senda flugvél til Miðausturlanda til að sækja íslenska ríkisborgara sem vilja flýja átakasvæðin. Borið hefur á gagnrýni á viðbrögð borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins og íslenskir ríkisborgarar hafa sagst hjálparlausir. Jóhann Friðrik Friðriksson, varaþingmaður Framsóknarflokksins, krafði ráðherra svara um viðbrögð ráðuneytisins á þingfundi í morgun. Ráðherra sagði að staðan væri flókin, Íslendingarnir 175 sem borgaraþjónustan hefði heyrt í væru dreifðir víða um Miðausturlönd og ekkert starfandi sendiráð er á þessum slóðum. Ísland hafi fengið boð í þrjú björgunarflug og hafa 18 fengið sæti í þeim flugvélum. „Við erum að skoða það að senda vél á svæðið. Við erum að fá inni hjá fleirum en Norðurlandaþjóðunum, hjá Frökkum og mér skilst líka Kanada. Þannig að við erum að gera það sem hægt er að gera. Af þessum 175 eru ekki allir sem vilja fara af svæðinu. Það er auðvitað skoðun sem við virðum,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra.