Alþingi samþykkti í morgun frumvarp innviðaráðherra um breytingar á leigubifreiðakstri. Helsta breytingin er að allir rekstrarleyfishafar þurfa að tengjast leigubifreiðastöð að nýju. Núverandi undanþága, sem gerir einstökum bílstjórum kleift að reka eigin stöð með einni bifreið, verður felld niður. Leigubifreiðastöðvar fá auknar skyldur, meðal annars að safna og varðveita upplýsingar um ferðir, svo sem upphafs- og endastöð og staðsetningu á meðan ferð stendur. Frumvarpið var samþykkt með 41 atkvæði, þar með talið atkvæðum þingmanna Miðflokks og Framsóknarflokks, en tíu þingmenn Sjálfstæðisflokks voru á móti. RÚV / Ragnar Visage