„Þessi um­ræða er rosa­lega niður­lægjandi“

Formaður Öryrkjabandalags Íslands segir umræðu varðandi frumvarp um að tengja bætur við vísitölu vera niðurlægjandi. Hún kveðst langþreytt á gagnrýni sem hefur komið úr ýmsum áttum og segir af og frá að fyrirhugaðar breytingar dragi úr hvata öryrkja til að leita á vinnumarkað.