Breiðu bökin verði skattlögð svo forsendur kjarasamninga standist
ASÍ mun ekki taka þátt í umræðum um niðurskurðaraðgerðir á velferðarkerfinu til að ná tökum á verðbólgu. Forsetinn vill að horft sé til hinna breiðu baka í samfélaginu til að ná tökum á ástandinu svo forsendur kjarasamninga standist í haust.